Bloggfærslur mánaðarins, desember 2013

Árgangsmót 2014

Jæja Besti Árgangurinn!

Þá er komið að langstærsta viðburði ársins 2014 allt til ársins 2019. Nú er að skella á 30 ára árgangspartý okkar mjög svo ylhýra árgangs 1968 og því ekki seinna vænna að taka þennan dag frá. 3. Maí 2014 næstkomandi er stórasti dagurinn og nú verður aldeilis tekið á því. Þema dagsins er Fjör fjör fjör og ekkert rör! Verði verður eins og venjulega verulega stillt í hóf. Nú duga engar afsakanir og alls engin spurning að þetta verður mega djamm, drottinn, guð og jesú hvað sem það nú þýðir en það kemur allt í ljós seinna meir.

Dagskráin er í grófum dráttum þessi:

Laugardagurinn 3. Maí 2014

15.00 Hittingur á Vesturgötu

Fótbolti karla og blak kvenna

17.00 Stelpupartý - Strákapartý

Heitur pottur, grillað, glamrað og gólað

20.00 Partý í Miðgarði

Skemmtidagskrá að hætti hússins og dansað, daðrað og

djammað fram eftir nóttu


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband